Velkomin á vefsíðu samtakanna Aðgerðir til Aðskilnaðar Ríkis og Kirkju (AARK).
Af hverju skiptir aðskilnaður Þjóðkirkjunnar frá ríkisvaldinu máli fyrir Ísland? Ástæðurnar má finna hér.
Meirihluti þjóðarinnar hefur viljað aðskilnaðinn í átján ár (sjá RÚV fréttina)… en vegna spillingar þá hefur ekkert verið aðhafst. Hvað getur hinn almenni borgari þá eiginlega gert? Eru íslenskir kjósendur ekki valdalausir í þessu máli eins og öllum öðrum?
Alls ekki! Ef nógu margir færa sig úr ríkiskirkjunni (og yfir í aðra kirkju með nákvæmlega sömu trúarkenningar) þá getur þingið ekki annað en hlýtt okkur. Ríkiskirkjusinnar hafa tönnlast á því í mörg ár að meðlimafjöldi Þjóðkirkjunnar réttlæti að hún verði áfram ríkiskirkja… eftir hverju erum við þá eiginlega að bíða? Nú til dags er hægt breyta skráningu sinni á örfáum mínútum gegnum netið og við bjóðum upp á fljótlegar og þægilegar leiðbeiningar hér. Einnig er mjög auðvelt að skreppa upp í Þjóðskrá og biðja þau um eyðublað þar. ATH að við erum ekki að hvetja neinn til að skipta um trúarbrögð, enda vísum við í þrjár kirkjur sem hafa nákvæmlega sömu trúarkenningar og ríkiskirkjan.
Til að fyrirbyggja algengan misskilning… aðskilnaður ríkis og kirkju er stjórnmálaskoðun, ekki trúarskoðun. Allir sem styðja málstaðinn, óháð trúarskoðun, eru hvattir til að vera með á spjallsvæðinu okkar. Þar fer fram umræða og skipulagning á næstu aðgerðum, ásamt deilingu frétta af aðskilnaðarmálum á Íslandi.
Að lokum, hér er nýleg RÚV frétt um stöðu mála á Íslandi.